Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Hlera Bandaríkjamenn síma Merkel? Nei, segir Obama


23. október 2013 klukkan 19:39

Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur hringt í Barack Obama Bandaríkjaforseta og óskað skýringa á ásökunum um að njósnað hafi verið um hana. Stjórnvöld í Berlin skýrðu frá því að þau hefðu fengið upplýsingar um að farsími kanslarans hefði verið hleraður.

Þýsku ríkisstjórninni hefur verið skýrt frá því að bandarískar stofnanir hafi hlerað farsímasamskipti Angelu Merkel kanslara. Talsmaður hennar skýrði frá þessu miðvikudaginn 23. október.

Angela Merkel

„Kanslarinn hringdi í dag til Obama forseta og sagði að hún sætti sig alls ekki við slíka starfshætti, reyndust ásakanir um þá réttir, og hún teldi þá gjörsamlega fráleita,“ sagði Steffen Seibert, talsmaður kanslarans. Fyrstu fréttir um hleranirnar birtust í Der Spiegel.

Frá Hvíta húsinu í Washington bárust hins vegar þær fréttir að Obama hefði fullvissað Merkel um að bandarískar stofnanir njósnuðu ekki um hana.

„Bandaríkjamenn fylgjast ekki með og munu ekki fylgjast með hvernig kanslarinn notar síma sinn,“ sagði Jay Carney, talsmaður Bandaríkjaforseta.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS