Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Vill Merkel komast inn í njósnaklúbb enskumælandi þjóða?


26. október 2013 klukkan 08:17
Angela Merkel og Barack Obama

Í frétt í Financial Times í dag er því haldið fram, að Angela Merkel, kanslari Þýzkalands vilji komast inn í njósnaklúbb enskumælandi þjóða, sem á rætur að rekja til ársins 1946. Þar er um að ræða Bandaríkin, Kanada, Bretland, Ástralíu og Nýja-Sjálands en þessar þjóðir skiptast á upplýsingum og hafa samkomulag sín í milli um að njósna ekki um hverja aðra.

FT segir að í umræðum á leiðtogafundi ESB-ríkja í Brussel í gær og í fyrradag hafi Merkel snúið sér að Davuid Cameron og haft orð á því að tengsl Breta við Bandaríkin væru ólík tengslum annarra Evrópuþjóða við þau að þessu leyti. Einn þeirra, sem var á fundinum segir að vísað hafi verið í „fimm augu“. Merkel hafi sagt: Ólíkt David þá erum við því miður ekki aðilar að þessu samstarfi. FT segir það mat sumra embættismanna innan ESB, að markmið Merkel sé að komast inn í þennan klúbb. Hún var spurð og svaraði því til að þar sem hún vissi ekki í hverju samstarf hinna fimm augna væri fólgið gæti hún ekki svarað spurningunni. New York Times heldur því hins vegar fram, að Þjóðverjar hafi árum saman leitað eftir aðild að þessu samstarfi en alltaf verið hafnað.

Hollande, forseti Frakklands segir hins vegar að Frakkar hafi engan áhuga á aðild að þessum njósnaklúbbi. Hann segir að fyrsta reglan sé sú að njósna ekki um eða hafa eftirlit meða farsímum þeirra, sem maður hitti á alþjóðlegum fundum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS