Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Eiffel-turninn: Aðgerðarsinni Greenpeace hangir í tjaldi


26. október 2013 klukkan 13:46

Aðgerðarsinni Greenpeace hékk í tvo tíma laugardaginn 26. október í tjaldi sem fest var með reipi í aðra hæð Eiffel-turnsins í París. Hann mótmælti aðför Rússa að 30 manns, þar á meðal félögum í Greenpeace, vegna mótmæla við rússneskan olíupall á Norður-Íshafi.

Tjald Greenpeace hangir úr annarri hæð Eiffel-turnsins laugardaginn 26. október.

Aðgerðin í Eiffel-turninum hófst um klukkan níu að morgni og lauk tveimur tímum síðar eftir að slökkviliðsmenn höfðu haft hendur í hári aðgerðarsinnans. Hann var með borða sem á stóð: „Free the Arctic 30“ og „Mótmælendur í fangelsi, loftslagið í hættu.“ Turninum var lokað á meðan hann hékk í tjaldinu.

Hinir 30 voru upphaflega sakaðir um sjórán en ákærunni var síðar breytt og nú eru þeir sakaðir um óeirðir á almannafæri.

Cyrille Cormier í Greenpeace sagði við AFP-fréttastofuna:

„Tilgangur okkar er að senda boð til frönsku ríkisstjórnarinnar og hvetja hana til að gera allt í hennar valdi til að tryggja frelsun aðgerðarsinnanna 28 og blaðamannanna tveggja.

Jean-Marc Ayrault forsætisráðherra ætlar til Rússlands í næstu viku. Við viljum að hann taki þetta mál upp við ráðamenn þar.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS