Ítölsk verkalýðssamtök, sem nefnast Feder Fauna og eru samtök fólks sem vinna með dýr, svo sem ræktendur og bændur og eru partur af stærri samtökum sem hafa innan sinna vébanda starfsmenn úr landbúnaði og samgöngugeiranum, hafa ákveðið að veita svonefnd „Hitlers-verðlaun“ hinn 24. nóvember n.k., þeim, sem hafa skarað fram úr í vinnu með dýrum árið áður.
Verðlaunin eru kennd við Adolf Hitler vegna þess að hann beitti sér fyrir lagasetningu til verndar dýrum að sögn verkalýðssamtakanna. Kallað hefur verið eftir tilnefningum vegna verðlaunanna.
Auglýsingaskilti hefur verið sett upp vegna verðlaunanna þar sem Hitler sést gefa dádýrum við inngang Auschwitz-búðanna í Póllandi, þar sem 1,3 milljónir manna voru drepnar.
Trúarleiðtogi úr röðum Gyðinga segir verðlaunaveitinguna merki um þróun til haturs, sem sjáist ekki bara á Ítalíu heldur um alla Evrópu.
Frá þessu segir Ítalíu-útgáfa TheLocal.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.