Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, er sakaður fyrir skattsvik í heimalandi sínu, Belgíu, og hefur verið stefnt fyrir rétt síðar í mánuðinum. Á síðasta ári sökuðu belgísk skattayfirvöld hann um að hafa ekki talið fram 1,2 milljónir vegna hlutabréfaviðskipta árið 2005.
Hann er krafinn um að greiða 900.000 evrur. Þar er um að ræða refiskatt ofan á upphaflegu skattaskuldina auk vaxta af ógreiddu skuldinni. Ekki náðist sátt um greiðslu skattsins með álaginu og því fer málið fyrir rétt hinn 25. nóvember sagði í belgískum fjölmiðlum föstudaginn 8. nóvember.
Karel De Gucht leiðir fríverslunarviðræðurnar við Bandaríkjamenn af hálfu ESB. Næsti áfangi þeirra á að hefjast mánudaginn 11. nóvember og hefur framkvæmdastjórn ESB staðfest að ekki verði nein breyting á stöðu De Guchts í þeim. Skattamálið sé „einkamál“ hans vegna atvika áður en hann settist í framkvæmdastjórn ESB.
Málið þykir vandræðalegt fyrir framkvæmdastjórnina og José Manuel Barroso, forseta hennar, sem ræðir mikið um nauðsyn þess að berjast gegn skattsvikum. Framkvæmdastjórnin hefur sagt að árlega nemi skot undan skatti um 1000 milljörðum á evru-svæðinu.
Karel De Gucht hlaut stuðning framkvæmdastjórnarinnar 8. nóvember og lögfræðingar hans segja fráleitt að um „fjársvik“ hafi verið að ræða eins og skattayfirvöld segja. „Við munum virða yfirlýsingu hans um sakleysi,“ sagði Pia Ahrenkilde Hansen, upplýsingafulltrúi framkvæmdastjórnarinnar.
Hún sagði einnig að De Gucht hefði farið yfir málið með José Manuel Barroso föstudaginn 8. nóvember og fullvissað forseta framkvæmdastjórnarinnar um að hann hefði ekkert brotið af sér.
„Þessi málaferli snúast um efni sem snertir ekki störf framkvæmdastjórans,“ sagði hún.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.