Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB, flutti ræðu í Berlín laugardaginn 8. nóvember til að minnast falls Berlínarmúrsins 9. nóvember 1989. Hann varaði við lýðskrumurum og varði reglur ESB um opin landamæri.
„Lýðskrum og þjóðernishyggja eru ekki réttu viðbrögðin við áskorunum okkar tíma,“ sagði Van Rompuy. Hann sagðist skilja áhyggjur ESB-borgara vegna hnattvæðingarinnar og fjármálakreppunnar en lagði áherslu á að eina lausnin fælist í hagvexti og fjölgun starfa en ekki að skella skuldinni á innflytjendur frá öðrum ESB-löndum.
„Skammaryrði eins og “bóta-ferðamennska„ og “að leggjast á sósíalinn„ á ekki að nota um innflytjendur,“ sagði hann og vísaði þar til gagnrýni sem oft er beint gegn Rúmenum og Búlgörum.
Van Rompuy hélt uppi vörnum fyrir stefnu ESB um opin landamæri og sagði vera „til marks um siðmenningu“. Hann sagði að grípa yrði til varna gegn straumi flóttamanna frá öðrum löndum eins og þeim fórust við Lampedusa í upphafslöndunum.
n
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.