John Mc Cain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Bandaríkjunum og fyrrum forsetaframbjóðandi þeirra, segir í samtali við þýzka tímaritið Der Spiegel í gær, að reka eigi Keith Alexander yfirmann NSA, bandarísku njósnastofnunarinnar, ef hann segi ekki sjálfur af sér. Hann segir að gera eigi Alexander ábyrgan fyrir því að þúsundir skjala hafi lekið, sem hafi veitt upplýsingar um starfsemi NSA. McCain segir að Snowden, sem hafi unnið sem verktaki fyrir stofnunina hefði aldrei átt að hafa aðgang að trúnaðarskjölum.
Í viðtalinu við Spiegel segir McCain að þingið hafi ekki fylgzt nægilega vel með starfsemi NSA og að um hafi verið að ræða óviðunandi skipti á upplýsingum. Árum saman áður fyrr hafi reglan verið sú, að skipti á upplýsingum hafi einungis farið fram, þegar nauðsyn krefði. Þingmaðurinn segir að Bandaríkjaforseti hefði átt að biðja Angelu Merkel afsökunar.
McCain telur að Rússar muni veita Snowden ótímabundið skjól. Þeir viti að sendi þeir hann til baka muni það halda aftur af öðrum, sem kynnu að vilja gera hið sama. Hann segist viss um að Snowden hafi sagt Rússum allt sem hann viti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.