Búlgarskir landamæraverðir hafa hrakið um 100 ólöglega innflytjendur til baka yfir landamærin að Tyrklandi sagði ráðuneytisstjóri búlgarska innanríkisráðuneytisins í Sofíu sunnudaginn 10. nóvember. Þetta þykir fréttnæmt vegna vaxandi spennu í Búlgaríu vegna útlendingamála og aukins styrks stjórnmálaafla sem starfa á þjóðernislegum grunni.
Um 1.200 lögreglumenn voru sendir til starfa í Strandzha-fjöllum í suðaustur hluta Búlgaríu föstudaginn 8. nóvember þar sem um 100 förumenn reyna að smygla sér yfir landamærin dag hvern. Í ár hefur 10.000 manns tekist að lauma sér inn í Búlgaríu. Innanríkisráðherra landsins vill hraða brottflutningi fólks til Norður-Afríku og Afganistan.
Skoðanakannanir sýna að almenningur í Búlgaríu sættir sig ekki við fjölgun ólöglegra aðkomumanna. Yfirvöld landsins voru ekki búin undir að förumenn streymdu til landsins.
Nýr flokkur þjóðernissinna var stofnaður laugardaginn 9. nóvember. Markmið hans er að „hreinsa landið af þessu hyski, þessum innflytjendum“. Flokkurinn starfar undir nafninu: Blóð og heiður.
Í þorpinu Telish í norðurhluta landsins mótmæla íbúarnir að fyrrverandi herskálum verði breytt í búðir fyrir förumenn. Hafa íbúarnir staðið sólarhringsvörð við skálana til að loka aðgangi að þeim. Tveir karlar hafa hótað að kveikja í sér opni yfirvöld förumannabúðir á þessum stað.
Heimild: AFP
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.