Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Rússland: Rak nagla í gegnum punginn á sér í Rauða torgið - mótmælti rússnesku lög­regluríki


11. nóvember 2013 klukkan 17:37
Pjotr Pavlenskj á Rauða torginu 10. nóvember 2013 - hefur nelgt í gegnum punginn og fest sig við götusteina.

Á liðnum öldum hefur ýmislegt gerst á Rauða torginu í Moskvu, segir The Guardian mánudaginn 11. nóvember, þar hafi menn verið teknir af lífi og efnt hafi verið til risa-hersýninga en engum hafi áður dottið í hug að gera það sem gjörningalistamaður gerði sunnudaginn 10. nóvember: að reka nagla í gegnum punginn á sér í götusteinanna og mótmæla þannig á sársaukafullan hátt.

Pjotr Pavlenskj sagði að með mótmælunum vildi hann sporna gegn falli Rússlands og breytingu þess í „lögregluríki“. Daginn valdi hann af því að þetta var dagur lögreglunnar og efndi hún til hátíðarhalda í tilefni hans. Hann sagði:

Pjotr Pavlenskj mótmælir dómi vegna Pussy Riot með að sauma saman varirnar.

„Gjörninginn má líta á sem táknmynd af sinnuleysi, kæruleysi stjórnmálamanna og örlagatrú nútíma samfélags í Rússlandi. Ríkisstjórnin breytir landinu i stórt fangelsi. hún stelur frá þjóðinni og notar peningana til að stækka og auðga lögreglukerfið og önnur kúgunartæki. Samfélagið leyfir þetta og gleymir tölulegu forskoti sínu, með aðgerðarleysi sínu færir það sigurstund lögregluríkisini nær.“

Pjotr Pavlenskj vafinn inn í gaddavír til að mótmæla rússneska kúgunarkerfinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pavlenskij skaðar sjálfan sig, hann hefur saumað saman á sér varirnar til að mótmæla fangelsun stúlknanna í Pussy Riot og vafið utan um sig gaddavír í mótmælastöðu fyrir utan rússneskra stjórnarbygginga, sagði hann það sýna „tilveru manns í kúgandi réttarkerfi“.

Kirill Serebrennikov, þjóðkunnur rússneskur leikshússtjóri, setti á fésbókarsíðu sína að gjörningurinn væri „öflug aðgerð algjörrar örvæntingar“.

Um hádegisbil sunnudaginn 10. nóvember gekk Pavlenskij inn á Rauða torgið, hann afklæddist og negldi punginn á sér í götusteinana á frægasta torgi Rússlands. Hann var handtekinn klukkustund síðar og fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans en hann neitaði að leggjast inn. Síðan var farið með hann á lögreglustöð.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS