Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Baulað á Frakklandsforseta við minningarathöfn í París


11. nóvember 2013 klukkan 18:13

Baulað var á François Hollande Frakklandsforseta mánudaginn 11. nóvember við hátíðlega minningarathöfn um látna hermenn á lokadegi fyrri heimsstyrjaldarinnar 1918. Mótmælendur hrópuðu „Hollande segðu af þér“ og „Einræði sósíalista“ þegar Frakklandsforseta var ekið eftir Champs-Elysées-breiðgötunni að Sigurboganum í hjarta Parísar.

Rauðhúfu-menn mótmæla á götum Parísar 11. nóvember 2013.

„Þú hefur engan rétt til að nýta þér 11. nóvember. Þú ert Frakklandi til skammar!“ hrópaði einn þeirra sem stóð við breiðgötuna. Til átaka kom milli mótmælenda og öryggisvarða, lögreglan sagði að tæplega 70 manns hefðu verið handteknir. Sumir mótmælendur voru úr hópum sem skipa sér lengst til hægri í samfélaginu auk þess var þar einnig að finna fólk sem mótmælti nýsettum lögum um hjónabönd samkynhneigðra.

Meðal þeirra sem gerðu hróp að Hollande báru nokkrir rauðar húfur. Þær eru að verða einkenni þeirra sem finnst nóg komið af skattahækkunum í Frakklandi og vaxandi atvinnuleysi. Hreyfing kennd við rauðar húfur varð til í síðasta mánuði í landbúnaðarhéruðum Bretagne-skaga þar sem fólk setti húfurnar á sig í götumótmælum gegn skattahækkunum og skírskotaði þar til „Rauðhúfu byltingarinnar“ á 18. öld.

Christian Troadec, talsmaður hreyfingarinnar á Bretagne, lýsti vanþóknun á mótmælendum í París og sagði þá ekki „hafa nein tengsl við hreyfingu okkar“.

Hollande lét mótmælin ekki fipa sig og hélt að Sigurboganum þar sem hann lagði blómsveig að gröf óþekkta hermannsins til minningar um alla sem féllu í fyrri heimsstyrjöldinni.

Heimild: The Local

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS