Miðvikudagurinn 24. febrúar 2021

Varsjá: Pólsk þjóðhátíðarganga breytist í átök við lög­reglu


12. nóvember 2013 klukkan 13:55

Pólska lögreglan lenti í átökum við ungmenni mánudaginn 11. nóvember í Varsjá þegar Pólverjar fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum. Þetta er þriðja árið í röð sem kemur til uppþota í skrúðgöngu á þjóðhátíðardeginum.

Mótmælendur í Varsjá 11. nóvember 2013.

Varsjár-lögreglan skaut gúmmíkúlum og greip til táragass við þjóðhátíðarhöldin þegar grímuklædd ungmenni, félagar í öfgasamtökum, hleyptu upp skrúðgöngu og efndu til skemmdarverka með því að kveikja í bílum og kasta púðurkerlingum.

Borinn var eldur að varðskýli fyrir framan rússneska sendiráðið. Byggingin er í augum margra minnisvarði um kúgunarstjórnina á Sovéttímanunm. Fjórir lögreglumenn lögðust undir læknishendur og á annan tug manna var handtekinn.

Skrúðgangan var friðsöm þegar haldið var af stað. Þúsundir manna gengu um götur höfuðborgarinnar, veifuðu margir pólska fánanum og hrópuðu slagorð eins og þessi: „Guð, heiður, föðurlandið“, aðrir kröfðust afsagnar mið-hægri ríkisstjórnar Donalds Tusks.

Eftir að menn höfðu gengið nokkurn spöl klufu tugir manna sig frá sjálfri skrúðgöngunni og réðust að húsi í miðborginni þar sem vinstrisinnaðir róttæklingar dvöldust sem hústökumenn.

Þar sem þessari þjóðhátíðargöngu lauk nú í þriðja sinn með átökum göngumanna og lögreglu eru uppi raddir meðal Varsjárbúa um að banna eigi gönguna framvegis.

Pólverjar halda 11. nóvember hátíðlegan sem þjóðhátíðardag því að þann dag 1918 endurheimtu þeir sjálfstæði sitt eftir fyrri heimsstyrjöldina.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS