Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Frakkland getur staðið frammi fyrir þjóð­félags­legri sprengingu

Andrúmsloftið er eldfimt segir verkalýðsleiðtogi í samtali við Le Figaro


12. nóvember 2013 klukkan 17:32
François Hollande

Frakkland getur staðið frammi fyrir þjóðfélagslegri sprengingu segir franskt dagblað, Midi Libre, sem er svæðisbundið dagblað. „Andrúmsloftið er mjög spennt, það er alls staðar eldfimt“, segir Thierry Lepaon, leiðtogi CGT verkalýðssamtakanna í samtali við Le Figaro í gær. Í blaðinu L'Opinion birtist fyrirsögn, sem sagði: Allt er að fara úr böndum alls staðar. Og Le Figaro sagði: Uppreisnin er að breiðast út með tilvísun til mótmæla vegna umhverfisskatta.

Auk þeirra mótmæla, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni er búizt við verkföllum og mótmælum í skólum með þátttöku kennara, annarra starfsmanna og foreldra, sem eru óánægðir með breytingar í skólastarfi. Hagsmunasamtök, sem eru fulltrúar fyrir smáatvinnurekendur, bakara, pípulagningamenn o.fl. munu efna til mótmæla á morgun, miðvikudag. Forráðamaður þeirra samtaka segir að verið sé að kæfa félagsmenn sína með sköttum.

Átökin sem hófust í norðvesturhluta Frakklands voru hörð, átök við óeirðalögreglu, mótmælendur lögðu undir sig stjórnarskrifstofur og eyðilögðu tæki. Meðlimir einnar mótmælendahreyfingar settu eld að radarmælum og eyðilögðu 48 slíka á nokkrum vikum.

Vefmiðillinn TheLocal segir í Frakklandsútgáfu sinni að fleiri mótmæli og verkföll séu í aðsigi og mikill þrýstingu á Hollande, forseta að grípa til aðgerða.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS