Laugardagurinn 27. febrúar 2021

Kanada: Sannleiks­nefnd um örlög barna indíana og inúíta fær leyndarskjöl


17. nóvember 2013 klukkan 14:27

Frá 2009 hefur sérstök nefnd, Sannleiks- og sáttanefndin, unnið að því í Kanada að kanna örlög um 150.000 barna af ættum indíána og inúíta sem tekin voru nauðug frá foreldrum sínum og sett í heimavistarskóla til að ala þau upp sem „hvít“.

Nefndin átti að ljúka störfum um mitt ár 2014 en hefur nú fengið umboð sitt framlengt um eitt ár til júní 2015 eftir að hún fékk heimild til að skoða þúsundir skjala sem um árabil hafa verið geymd sem ríkisleyndarmál í þjóðskjalasafni Kanada.

Nefndin hefur ferðast vítt og breitt um Kanada og safnað sögum þeirra sem kynntust að eigin raun dvölinni í heimavistarskólunum á vegum ríkis og kirkna víðs vegar um landið. Illa var farið með mörg barnanna og þau misnotuð.

Tilgangurinn með nefndarstarfinu er að svipta hulunni af þessum svarta bletti á kanadísku þjóðlífi, stuðla að sáttum og skilningi milli fórnarlambanna og annarra Kanadamanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS