ESB-þingið samþykkti þriðjudaginn 10. desember umdeildan fiskveiðisamning við Marokkó. Um 120 skip frá 11 ESB-ríkjum, einkum þó frá Spáni, fá nú heimild til að veiða að nýju í lögsögu Marokkó næstu fjögur ár. Skipin voru rekin af þessum miðum árið 2011 vegna pólitísks ágreinings ESB og Marokkó.
ESB greiðir 30 milljónir evra á ári fyrir veiðiréttindin, þar af renna 14 milljónir til að þróa fiskiðnað í Marokkó. Þá greiða útgerðarmenn 10 milljónir evra að auki til Marobkkó-stjórnar fyrir skip sín.
310 þingmenn greiddu atkvæði með samningnum en 204 á móti. Í desember 2011 hafnaði ESB-þingið samningi um fiskveiðar við Marokkó vegna ágreinings um lagalega stöðu Vestur-Sahara þar sem Spánverjar fóru áður með stjórn mála en hún er nú í höndum Marokkómanna.
Árið 1976 var Vestur-Sahara innlimað í Marokkó og Polisario-menn hófu baráttu fyrir sjálfstæði landsins. Þeir mótmæltu fiskveiðisamningnum þriðjudaginn 10. desember og sögðu að hann kynni að grafa undan viðkvæmri stöðu á svæðinu.
Árið 1991 beittu Sameinuðu þjóðirnar sér fyrir vopnahléi en ekki hefur verið staðið við loforð sem þá var gefið um að íbúar Vestur-Sahara fengju að ákveða framtíð sína í atkvæðagreiðslu.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.