Sunnudagurinn 17. janúar 2021

Noregur: Brottvísuðum útlendingum hefur fjölgað um 23% á milli ára - allt hefur 5.441 útlendingi verið vísað úr landi - flestir frá Nígeríu


29. desember 2013 klukkan 19:10

Brottvísunum útlendinga frá Noregi hefur fjölgað um 23% á árinu 2013 miðað við árið 2012. Í nóvember einum flutti útlendingadeild norsku lögreglunnar úr landi 530 einstaklinga sem ekki höfðu lögmæta heimild til dvalar í Noregi. Flestir þeirra sem fluttir eru á brott á kostnað norskra skattgreiðenda eru Nígeríumenn.

Anders Anundsen

Alls hefur 5.441 útlendingi verið vísað frá Noregi vegna ólögmætrar dvalar í landinu á tímabilinu frá janúar til loka nóvember í ár, þar af höfðu 2.060 gerst sekir um afbrot segir útlendingadeild lögreglunnar.

Af hinum brottreknu voru 11,5% eða 627 ríkisborgarar í Nígeríu. Á hæla þeim koma Afganir, 545, Rúmenar skipa þriðja sæti, 462. Í þessum hópi voru einnig 14 Bandaríkjamenn og 11 Svíar.

Á vefsíðunni ABC-Nyheter segir sunnudaginn 29. desember að fyrr þann sama dag hafi Anders Anundsen, dóms- og viðbúnaðarráðherra úr Framfaraflokknum, lofað að afgreiðslu á málum fólks sem hefur engin rök fyrir ósk um hælisvist yrði enn hraðað. Hann sakar forvera sína um að hafa lagt of litla áherslu á afgreiðslu mála á þessu sviði.

ABC-Nyheter segir að þegar litið sé til brottvísana á afbrotamönnum og öðrum útlendingum sem dveljist ólöglega í Noregi geti Anundsen ekki kvartað þegar hann gangi að borðinu:

Við lok nóvember hafi lögreglan flutt 23% fleiri útlendinga nauðuga úr landi en á 11 mánuðum árið 2012. Þá hafi talan verið komin í 4.434.

Þegar litið sé til brottflutnings á þeim sem dæmdir hafi verið til refsivistar hafi þeir verið 222 í lok nóvember 2013. Það sé 68% aukning miðað við árið 2012.

Af brottvísuðum sem hlotið hafi refsidóma komi 22% frá Rúmeníu, 11% frá Nígeríu og 10% frá Póllandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS