Tvíbolungur bandaríska flotans Spearhead er nú í jómfrúarferð sinni til Evrópu þar sem gerðar verða tilraunir á þessu fyrsta turbó-herskipi flotans. Talið er víst að skipið verði fljótt í förum því að USNS Spearhead getur náð allt að 80 km hraða á klukkustund.
Tvíbolungnum er ætlað að flytja bandarískan liðsafla og búnað hans með hraði á sjó og upp á land.
Bandaríski flotinn hefur alls pantað 10 Spearhead-skip fyrir um það bil 250 milljarða króna. Skrokkur skipsins er úr áli og eru þau því léttari en stálskip.
Um borð er rými fyrir 312 hermenn og þyrlu. Fyrstu reynslusiglingarnar verða á athafnasvæði 6. flota Bandaríkjanna en heimahöfn hans er í Napólí á Ítalíu. Að loknum æfingum og tilraunum á Miðjarðarhafi verður skipið sent til starfa í flota Bandaríkjanna í Suður-Ameríku.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.