Danski blaðamaðurinn Jørgen Dragsdahl hefur fengið leyfi til að áfrýja meiðyrðamáli á hendur Bent Jensen til Hæstaréttar Danmerkur.
Á síðasta ári sýknaði Eystri landsréttur í Danmörku Bent Jensen, prófessor emeritus, í máli sem Jørgen Dragsdahl höfðaði gegn honum fyrir að hafa kallað sig útsendara KGB á tíma kalda stríðsins. Landsrétturinn hnekkti þannig dómi í undirrétti í Svendborg sem dæmdi Bent Jensen fyrir meiðyrði.
Í Danmörku tekur sérstök nefnd ákvörðun um áfrýjun til hæstaréttar og ákvað hún miðvikudaginn 29. janúar að veita Jørgen Dragsdahl sérstakt áfrýjunarleyfi í þessu máli. Nefndin færir ekki rök fyrir leyfinu segir Jyllands-Posten en blaðið segir að útgáfa á sérstöku leyfi til áfrýjunar sé venjulega reist á þeirri skoðun að málið snerti grundvallaratriði sem hafi samfélagslega skírskotun.
Jørgen Dragsdahl skrifaði um öryggis- og utanríkismál í dagblaðið Information og í skjalasafni dönsku leyniþjónustunnar, PET, er hann nefndur KGB-útsendari án nokkurs fyrirvara. Eystri landsréttur sagði að með vísan til þess hefði Bent Jensen haft málefnalega ástæðu til að lýsa honum sem KGB-útsendara í Jyllands-Posten í janúar 2007.
Málið hefur vakið miklar umræður í Danmörku og hefur verið stofnað til samtaka og samskota til að kosta málaferlin, nú er ljóst að þeim lýkur í Hæstarétti Danmerkur.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.