Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýzkalands segir að framgangur flokka á borð við Ukip í Bretlandi sé þröskuldur í veg fyrir því samstarfi Evrópuríkja, sem hafi tryggt frið í Evrópu í áratugi. Utanríkisráðherrann er nú í heimsókn í Bretlandi og frá þessum ummælum hans segir í Daily Telegraph. Hann segir jafnframt að Þjóðverjar og Bretar séu ekki samstíga, sem blaðið túlkar sem áfall fyrir hugmyndir Davids Camerons um að endursemja um aðild Breta að Evrópusambandinu.
Steinmeier segir að í stað þess að stefna enn frekar í sitt hvora átt eigi Evrópuríkin að efla samstarf sitt og minnir á að þegar samstarf þessara ríkja hafi ekki orðið stöðugt nánara hafi hættan á hernaðarlegum átökum aukizt. Steinmeier segir að saga áranna fyrir fyrra stríð sé saga fólks, sem hafi ekki talað saman og saga þjóðernisstefnu, sem ekki hafi verið hægt að halda innan marka.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.