Yfirgæfandi meirihluti ESB-þingmanna (618 gegn 20) samþykkti þriðjudaginn 4. febrúar nýjar reglur um fjármálamarkaðinn þar sem sett eru hörð viðurlög við markaðsmisnotkun og innherjaviðskiptum. Þeir sem brjóta reglurnar verða ekki lengur aðeins sektaðir heldur kunna að verða dæmdir í fangelsi.
Í ræðum þingmanna kom fram að með nýju reglunum væri brugðist við atvikum eins og þeim sem talin eru hafa leitt til bankaáfallsins árið 2008 og almennt grafið undan trausti almennings í garð starfsmanna fjármálafyrirtækja og starfsemi þeirra. Þá var einnig bent á tilraunir risabanka til að stjórna ákvörðunum um libor-vexti sér í hag.
Í lögunum sem ESB-þingið samþykkti eru ákvæði um að gerist menn sekir um alvarlega markaðsmisnotkun eða svik skuli lágmarks fangelsisrefsing vera fjögur ár.
Þá er einnig að finna ákvæði um stjórnvaldssektir í nýju lögunum og mega þær nema allt að fimm milljónum evra fyrir sviksamleg viðskipti.
Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB, sagði eftir að ESB-þingið hafði afgreitt málið: „Þeir sem stunda svik við meðferð á sparifé annars fólks geta ekki lengur fært sér í nyt glufur í ESB-reglum.“
Lagatextinn fer nú til afgreiðslu í ESB-ríkjunum en talið er að það taki að minnsta kosti tvö ár að innleiða löggjöfina. Hún fellur undir EES-samninginn og kemur því til kasta alþingis í fyllingu tímans.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.