Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Grænland: Engin áform um að hrófla við einokun Royal Arctic Line


4. febrúar 2014 klukkan 16:46

Steen Lynge, heilbrigðis- og innviðaráðherra í Grænlandi, segir að grænlenska landstjórnin hafi á þessu stigi engin áform um að hrófla við einokun skipafélagsins Royal Arctic Line A/S (RAL) til farmflutninga við strendur Grænlands eða til og frá Grænlandi. Félagið hafi bæði rétt og skyldur gagnvart Grænlendingum.

Grænlenska útvarpið sagði þriðjudaginn frá svari ráðherrans á þingi Grænlands við fyrirspurn um samkeppni í farmflutningum á sjó.

Í skriflegu svari ráðherrans kemur fram að á þessu stigi séu engin áform um að leyfa samkeppni á siglingaleiðum sem falla undir einkarétt RAL. Tekjur skipafélagsins af arðbærum flutningum eins og milli Álaborgar og Nuuk nýtist til að fjármagna óarðbærar ferðir til þorpa á strönd Grænlands. Verði tekjur félagsins skertar með aukinni samkeppni leiði það til minni þjónustu við þessi þorp og byggðarlög.

Ráðherrann segir að landstjórnin ætli að eiga samvinnu við RAL um að auka enn hagkvæmni í rekstri félagsins. Þá tekur hann fram að standa verði að framkvæmd á einkaréttarsamningi landstjórnarinnar við RAL á þann veg að hún samræmist skyldum sem hvíla á Grænlendingum með vísan til alþjóðasamninga sem danska ríkið hefur gert um siglingar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS