Segir 50 milljarða evra gat í efnahag banka á evrusvæðinu
Bankar á evrusvæðinu standa frammi fyrir 50 milljarða gati á efnahagsreikningi sínum að mati David Serra, forstjóra fjármálafyrirtækis að nafni Algebris, sem veitir ríkisstjórn Bretlands ráðgjöf um bankamál. Hann segir líklegt að álagspróf, sem bankarnir verða að undirgangast síðar á þessu ári leiði þetta í ljós. David Serra segir jafnframt að bankakerfið í Þýzkalandi sé eitt það versta í heiminum og telur að þrír til fjórir svonefndir Landesbankar muni loka. Þá telur hann banka í Portúgal og á Grikklandi þurfa meira fjármagn. Frá þessu segir Daily Telegraph.
David Serra telur að verstu fréttirnar eigi eftir að koma frá Þýzkalandi, sem hafi lítið verið skoðað og talið sterkast. En hæfileikafólk í Þýzkalandi ráðist ekki til starfa í bönkum heldur til BMW og Mercedes Benz.. Hann segir bankaeftirlitið í Þýzkalandi veikt og undir miklum áhrifum frá stjórnmálamönnum.
Serra segir að talið sé að bankarnir séu með á bókum sínum mikið af fasteignalánum, sem standi illa. Álagsprófin muni auðvelda stjórnvöldum í Þýzkalandi að taka á málinu. Hann telur fjármálageirann í Bretlandi kraftmeiri og gagnsærri en í flestum löndum Evrópu.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.