Þriðjudagurinn 28. júní 2022

Yfirmenn íslenskra löggæslumála í heimsókn hjá Europol


10. febrúar 2014 klukkan 13:55

Íslendingar gerðust aðilar að lögreglusamstarfi Evrópuríkja undir merkjum Europol (European law enforcement agencey) með samningi sem ritað var undir í júní 2001.

Yfirmenn íslenskra löggæslumála kynna sér starfsemi Europol í Haag.

Markmið samningsins er að auka samvinnu aðildarríkja ESB, fyrir milligöngu EUROPOL, og Íslands í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi, einkum með skiptum á upplýsingum um einstök mál. Embætti ríkislögreglustjóra kemur fram gagnvart EUROPOL fyrir Íslands hönd, íslenskur tengifulltrúi, Arnar Jensson, hefur verið hjá EUROPOL síðan 1. febrúar 2007.

Í fréttatilkynningu frá ríkislögreglustjóra mánudaginn 10. febrúar segir að dagana 3. til 5. febrúar hafu sendinefnd Íslands heimsótt Europol en höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Haag íu Hollandi.

Í sendinefndinni voru Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Snorri Olsen, tollstjóri, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri og Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Sendinefndin átti fund með Rob Wainwright, forstjóra Europol og einnig aðra fundi um helstu verkefni Europol og samstarfsverkefni við lögreglu- og tollayfirvöld á Íslandi.

Lögreglu- og tollayfirvöld hafa nýverið gert með sér samstarfssamning um tengslafulltrúa Íslands við Europol og samstarf við stofnunina.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS