Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Noregur: Þríhliða heræfingu með Rússum á norðurslóðum aflýst


15. mars 2014 klukkan 14:07

Norska varnarmálaráðuneytið segir líklegt að þríhliða heræfingu undir nafninu Northern Eagle sem ætlunin var að yrði í maí verði aflýst. Frá þessu segir á norsku vefsíðunni BarentsObserver föstudaginn 14. mars en þar er bent á að í tvo áratugi hafi Rússar og Norðmenn unnið að bættum tvíhliða samskiptum sínum á norðurslóðum.

Frá heræfingu í Barentshafi.

Skipulagsfundur vegna æfingarinnar var ráðgerður í næsta mánuði en honum hefur verið aflýst. Bandaríkjamenn hafa þegar hafnað þátttöku í æfingunni eftir að þeir frystu öll hernaðarleg samskipti við Rússa vegna aðgerða Moskvu-ráðamanna í Úkraínu.

Marita Isaksen Wangberg, upplýsingafulltrúi norska varnarmálaráðuneytisins, sagði í tölvubréfi til BarentsObserver að ólíklegt sé að æfingin verði:

„Þetta er þríhliða æfing og þegar Bandaríkjamenn hafa fryst tvíhliða hernaðarlega samvinnu við Rússa þar til annað er ákveðið leiðir það til þess að ólíklegt er að efnt verði til æfingarinnar í maí eins og ætlað var.“

Norsk herskip tóku í fyrsta sinn þátt í Northern Eagle-æfingunni árið 2008. Annað hvort ár efna norski og rússneski flotinn til sameiginlegrar æfingar í norðurhöfum undir heitinu Pomor. Næsta æfing undir þessum merkjum er á dagskrá árið 2015 þar er venjulega lögð áhersla á leit og björgun, aðgerðir gegn sjóránum og hryðjuverkum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS