Aðskilnaðarsinnar í Úkraínu efna til atkvæðagreiðslu um sjálfstæði meðal 3 milljóna manna í austurhluta landsins sunnudaginn 11. maí. Oleksandr Turstjinov, starfandi forseti Úkraínu, berst hart gegn atkvæðagreiðslunni og segir að hún geti „eyðilagt landið“. Hann hvetur til sátta en þó ekki við „hryðjuverkamenn“.
Forsetinn segir að með því að segja nei geti fólk bjargað þjóðinni frá að splundrast. Markmið aðskilnaðarsinna er að segja sig úr lögum við ríkisstjórnina í Kænugarði.
Að segja skilið við Kænugarð jafngilti „stökki út í hyldýpið fyrir íbúa þessara héraða,“ sagði forsetinn á vefsíðu ríkisstjórnarinnar laugardaginn 10. maí og einnig:
„Þeir sem vilja sjálfstjórn átta sig á að í henni felst algjör eyðilegging á efnahagskerfinu, félagslega kerfinu og almennt á lífskjörum meirihluta íbúanna þessum héruðum.“
Forsetinn sagði einnig að íbúar í austurhluta landsins hefðu látið áróður „hryðjuverkamanna“ hafa áhrif á sig, þeir þjónuðu hins vegar hagsmunum ráðamanna í Moskvu og sérlega Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.