Árni Þór Sigurðsson, þingmaður vinstri-grænna og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, er þeirrar skoðunar, að halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið, þótt á móti blási samkvæmt skoðanakönnunum. Hann segir á vefsíðu sinni 2. apríl:
„Sjálfur tel ég einboðið að viðræðuferlið hafi sinn eðlilega gang. Það á ekki að sæta neinni sérstakri flýtimeðferð en það á heldur ekki að hlaupa til nú og breyta um leið eftir því hvernig vindar blása. Í mínum huga er það verkefni stjórnmálanna að tryggja að það verði þjóðin sjálf sem ákveði framtíð sína í þessu efni í þjóðaratkvæðagreiðslu þegar öll efnisatriði liggja fyrir. Það er hin eina lýðræðislega leið sem við eigum.“
Í pottinum segja menn þessa skoðun Árna Þórs ögrun við sífellt stærri hóp meðal vinstri-grænna, sem vill, að ríkisstjórnin nemi staðar, skoði sinni gang og taki mið af þeirri staðreynd, að ríkisstjórnin sé klofin í málinu og meirihluti þjóðarinnar á móti þeirri stefnu, sem hún fylgir í málinu.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.
Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?
Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.