Föstudagurinn 15. janúar 2021

Lærir ráðuneytið af mistökum sínum?


26. júní 2010 klukkan 09:38

Eins og fram hefur komið hér á Evrópuvaktinni neitar utanríkisráðuneytið því að samstarf hafi tekizt milli þess og Evrópusambandsins um kynningu á ESB hér á Íslandi. Hins vegar viðurkennir ráðuneytið, að „það hefði verið réttara að bjóða fjölmiðlunum en ekki einstaklingunum“, sem boðnir voru í sérstaka kynnisferð til Brussel í lok maí til framhaldsfundar í utanríkisráðuneytinu um „næstu skref“ í ESB-málinu.

Kjarni málsins er auðvitað sá, að starfsmenn ráðuneytisins hafa sýnt ótrúlegan dómgreindarskort í sambandi við þetta mál, sýnt fjölmiðlunum ókurteisi og sett viðkomandi blaðamenn í óþolandi aðstöðu með því að gera þá að eins konar samráðshópi fyrir ráðuneytið um framhald málsins.

Væntanlega lærir ráðuneytið af þessum mistökum þannig að þau verði ekki endurtekin.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS