Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, hefur ekki mikla trú á Samfylkingunni. Í grein í Fréttablaðinu í dag segir hann:
„Takist að gera Evrópusambandsaðild að sérmáli Samfylkingarinnar þá er útséð um afdrif málsins.“
Guðmundur Andri er sérstakur vinur Samfylkingarinnar og þegar slíkir vinir hennar hafa misst trú á hana er ekki við góðu að búast!
Þetta er ekki spurning um, hvort einhverjum vondum öflum „tekst“ að gera ESB-málið að sérmáli Samfylkingarinnar. Það er sérmál Samfylkingarinnar og það er Samfylkingin sjálf sem hefur séð um það.
Meirihluti þjóðarinnar er andvígur aðild að ESB skv. skoðanakönnunum.
Meirihluti Alþingis er andvígur aðild að ESB eins og allir vita. Yfirgnæfandi meirihluti í öllum öðrum flokkum en Samfylkingu er andvígur aðild að ESB eins og kannanir hafa sýnt.
Eina ástæðan fyrir því, að þetta mál er á dagskrá er sú, að Samfylkingin kúgaði samstarfsflokk sinn í ríkisstjórn til þess að samþykkja aðildarumsókn ella yrði ríkisstjórnarsamstarfi slitið.
Þetta veit Guðmundur Asndri jafnvel og allir aðrir. Það er hins vegar fagnaðarefni að hann er svo raunsær á stöðu málsins að hann gerir sér grein fyrir því og hefur kjark til að viðurkenna að þar með stendur Samfylkingin uppi með tapað mál.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...