Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Leiðbeininga óskað frá Svavari um jarðsprengjubelti VG


25. ágúst 2010 klukkan 08:23

Svavar Gestsson

Svavar Gestsson, fyrrverandi sendiherra hefur haft orð á því sérstaklega, að Evrópuvaktin hafi dálæti á Ásmundi Einari Daðasyni, þingmanni Vinstri grænna. Af því tilefni hefur Svavar verið spurður hér í pottinum, hvort ekki megi tala vel um þingmenn Vinstri grænna. En svo sem ekki við því að búast að þeirri spurningu verði svarað.

Hins vegar vekur athugasemd sendiherrans fyrrverandi upp aðra og áhugaverða spurningu, þ.e. á hvaða þingmönnum VG má hafa dálæti án þess að Svavar geri athugasemdir.

Vafalaust má hafa dálæti á Álfheiði Ingadóttur. Þau Svavar eru samherjar innan VG. Hið sama má áreiðanlega segja um Steingrím J. Sigfússon. Jóni Bjarnasyni? Varla. Lilju Mósesdóttur? Varla. Ögmundi Jónassyni? Örugglega ekki! Guðfríði Lilju Grétarsdóttur? Varla. Atla Gíslasyni? Ætli það? Árna Þór Sigurðssyni? Sennilega. Katrínu Jakobsdóttur? Það getur verið álitamál.

Hér verður ekki lengra haldið.

En það væri gagnlegt að fá leiðbeiningar frá Svavari Gestssyni, svo að „fyrirbæri“ á borð við Evrópuvaktina, svo notað sé orðalag Svavars, misstígi sig ekki á jarðsprengjusvæði þingflokks Vinstri grænna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS