Laugardagurinn 23. janúar 2021

Hafa vinstri menn á Íslandi engar nýjar hugmyndir?


21. september 2010 klukkan 09:04

Steingrímur J. Sigfússon-hefur hann engar nýjar hugmyndir?

Financial Times varpar þeirri spurningu fram í forystugrein um úrslit kosninganna í Svíþjóð til hvers vinstri flokkar séu, sem hafi engar nýjar hugmyndir fram að færa við lausn á þeim vandamálum, sem kapítalisminn hafi lent í og séu ein þau verstu í sögu hans. Telur blaðið að þetta sé ein skýringin á því, að jafnaðarmenn og aðrir vinstri menn hafi ekki náð meiri árangri í kosningunum í Svíþjóð.

Þessi spurning er umhugsunarverð í ljósi þess, sem gerzt hefur hér á Íslandi frá hruni. Vinstri flokkarnir hafa lagt mikla áherzlu á, að hrunið sé afleiðing þess, sem þeir kalla nýfrjálshyggju, hvað svo sem það kann nú að vera, og að þeir hafi verið til þess kjörnir að hreinsa til.

En hafa þeir sett fram einhverjar nýjar hugmyndir? Í hverju hafa aðgerðir þeirra verið fólgnar?

Þeir hafa samið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um ný lán.

Þeir hafa lofað að skera niður á fjárlögum næsta árs um nokkra milljarðatugi, sem er krafa sjóðsins og raunar fjármálaafla (kapítalista) um allan heim að ríki geri.

Þeir hafa reynt að leggja á þjóðina mörg hundruð milljarða skuldaklafa vegna Icesave en að vísu ekki tekizt.

Þeir hafa komið í veg fyrir nýja atvinnuuppbyggingu.

En – þeir hafa að vísu sótt um aðild að ESB

Er afsal á yfirráðum yfir auðlindum Íslands eina nýja hugmyndin, sem vinstri menn á Íslandi hafa frammi fyrir hruninu og afleiðingum þess?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS