Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Jón Þór Sturluson: Treysti ekki þing­flokki Samfylkingar


1. október 2010 klukkan 09:56

Jón Þór Sturluson, fyrrverandi aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar og reyndar á sama tíma sérstakur efnahagsráðgjafi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sagði sig úr Samfylkingunni í fyrradag. Í samtali við RÚV í morgun kvaðst Jón Þór ekki geta borið mikið traust til þingflokks Samfylkingarinnar. Hann telur, að einhverjir þingmenn Samfylkingarinnar hafi litið á atkvæðagreiðsluna um landsdómsmálið, sem eins konar uppgjör á milli Björgvins og Ingibjargar Sólrúnar. Jafnframt telur hann að endurfundir þingmanna við Björgvin G. Sigurðsson verði erfiðari fyrir suma þingmenn en Björgvin sjálfan og nefnir í því samhengi Ólínu Þorvarðardóttur og Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.

Nú er ljóst að fáir af þeim, sem utan við þingflokk Samfylkingar standa, þekkja betur til mála innandyra en Jón Þór vegna fyrri starfa hans.

Ef sá maður telur sig ekki geta treyst þingflokki Samfylkingarinnar, hver getur það þá?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS