Föstudagurinn 23. apríl 2021

Hvenær kemst Ólafur Ragnar í jarð­samband?


1. október 2010 klukkan 14:34

Xhinhua
Ólafur Ragnar Grímsson og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, 13. september 2010.

Óskaplega á Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands erfitt með að komast í jarðsamband á Íslandi. Í ræðu hans við þingsetningu, sem var að ljúka var hann enn með hugann við ráðamenn erlendra ríkja, sem hann hefur verið að hitta að máli, bæði í Kína og Rússlandi.

Á sama tíma gerði fólksfjöldi fyrir utan þinghúsið hróp að ráðamönnum, krafðist afsagnar vanhæfrar ríkisstjórnar og kastaði eggjum og öðru í kirkju, þinghús og þingmenn.

Hvenær ætli forseti og aðrir ráðamenn þjóðarinnar geri sér grein fyrir að veruleikann í daglegu lífi íslenzku þjóðarinnar er að finna á Austurvelli á þessari stundu en ekki í glæstum móttökusölum í Peking og Moskvu?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS