Sunnudagurinn 11. apríl 2021

Hvers vegna er Jóhanna að „rétta fram sáttahönd“?-Hún hefur meirihluta!


5. október 2010 klukkan 08:40

Jóhanna Sigurðardóttir sagði að loknum umræðum á Alþingi í gærkvöldi, að hún hefði rétt fram sáttahönd í ræðu sinni. Hún mundi kalla formenn flokkanna saman til fundar í dag og það þyrfti að leysa skuldavanda heimilanna.

Nú er staðan sú, að það hefur þurft að leysa skuldavanda heimilanna í tvö ár eða frá hruni. Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa haft meirihluta á Alþingi frá kosningunum í apríl 2009. Þann tíma, sem liðinn er frá kosningum hafa þau ekki notað til að leysa skuldavanda heimilanna.

Nú segist Jóhanna rétta fram sáttahönd til þess að leysa þann vanda. Hvað kemur til? Þau Steingrímur hafa enn meirihluta á Alþingi. Þau geta beitt þeim meirihluta til þess að leysa vandann ef þau hafa vilja til – og leyfi frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Hvers vegna er Jóhanna þá að „rétta fram sáttahönd“?

Það er bara ein skýring á því.

Til að bjarga sjálfri sér.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS