Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Er ráðandi stjórnmálastétt á Íslandi ráðþrota?


6. október 2010 klukkan 08:57

Er stjórnmálastéttin á Íslandi ráðþrota? Nú er liðið á annan sólarhring frá hinum miklu og sögulegu mótmælum á Austurvelli og enn bryddar ekki á hugmyndum frá stjórnmálastéttinni um raunsæ viðbrögð við þeim augljósu kröfum, sem þar komu fram.

Sjálfstæðismenn hafa að vísu hvatt til lengingar lána og lækkunar höfuðstóls og Framsóknarmenn hafa vísað til upphaflegra hugmynda sinna um flatan niðurskurð en ráðandi ríkisstjórn virðist ekkert hafa fram að færa ef marka má frásögn fulltrúa stjórnarandstöðunnar af fundi þeirra með forsætisráðherra og fjármálaráðherra í gær.

Steingrímur J. Sigfússon hefur sagt að þær hugmyndir, sem frá upphafi hafa verið reifaðar um að færa verðtryggingu lána til upphafs ársins 2008, sem svo hafa komið fram í ýmsum myndum síðan séu of dýrar fyrir ríkissjóð.

Að sjálfsögðu verður að ræða það, hvort Steingrímur J. hafi rétt fyrir sér. En þá verður hann að leggja grundvöll að slíkum umræðum með öðru en staðhæfingum einum. Hann verður að leggja fram upplýsingar og rök.

Og jafnframt verður hann að útskýra á hvern hátt sú lausn verður dýrari fyrir íslenzkt samfélag en afleiðingar þess að mæta á engan hátt þeirri reiði og vonleysi og fyrirlitningu á stjórnvöldum, sem birtust á Austurvelli sl. mánudagskvöld.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS