
Það er athyglisvert að fylgjast með þeirri breytingu, sem orðið hefur á afstöðu samtaka ýmissa atvinnugreina til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Um skeið voru Samtök atvinnulífsins hávær í baráttu fyrir inngöngu. Þau eru nú þögnuð.
Um skeið voru Samtök iðnaðarins mjög hávær í baráttu fyrir inngöngu. Þau eru nú þögnuð.
Þetta hefur gerzt vegna þess, að almennir félagsmenn í þessum samtökum hafa tekið fram fyrir hendurnar á nokkrum háværum starfsmönnum.
Hvenær ætli félagsmenn í verkalýðsfélögunum, sem mynda Alþýðusamband Íslands taki fram fyrir hendur á nokkrum háværum starfsmönnum þess, sem eru ekki lengur í takt við nokkurn félagsmann í þeim samtökum?
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.
Stjórnarmyndun langt komin - og ekkert fréttist!
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnarmyndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í samfélagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.
Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármálaráðherra
Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármálaráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.