Í dag mun ríkisstjórnin kynna formönnum stjórnarandstöðuflokkanna nýjustu hugmyndir sínar um lyktir Icesave-deilunnar, sem eins og kunnugt er snýst um það grundvallaratriði, hvort íslenzkir skattgreiðendur eigi að greiða skuldir, sem einkaaðilar hafa stofnað til.
Í dag segir Morgunblaðinu frá enn einni álitsgerð, sem staðfestir þá skoðun, sem haldið hefur verið fram af hálfu stjórnarandstöðunnar að Íslendingum beri engin lagaleg skyld eða skylda skv. alþjóðasamningum til þess að greiða skuldir, sem einkafyrirtæki stofnaði til.
Núverandi ríkisstjórn hafði skrifað undir samninga um Icesave, sem hefðu getað þýtt hundruð milljarða króna byrðar fyrir íslenzkan almenning. Þjóðin hafnaði þeim samningum.
Nú mun ríkisstjórnin leggja fyrir formenn stjórnarandstöðunnar samning, sem gerir ráð fyrir margra tuga milljarða skuldbindingum skattgreiðenda hér.
Með hvaða rökum ætlar ríkisstjórnin að leggja til að þjóðin taki á sig slíkar skuldbindingar?
Dettur meirihluta Alþingis í hug að afgreiða slíkan samning án þess að leggja hann á ný undir þjóðaratkvæði eftir það, sem á undan er gengið?
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...