Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur birtir játningar í Fréttablaðinu í dag. Játning hans er sú, að hafa greitt atkvæði með Icesave-samkomulagi ríkisstjórnarinnar fyrir tæpu ári. Hann segist hafa „panikerað“. Hann gefur í skyn að hann hafi verið blekktur með keyptum lögfræðiálitum. Hver ætli hafi keypt þau? Ríkisstjórnin, sem hann styður?!
Og hvað um hagfræðingana, sem boðuðu dómsdag ef ekki yrði samið um hundruð milljarða skuldaklafa á íslenzku þjóðina, sem hún hefði tæpast losnað úr fyrr en kannski á 22. öldinni?! Af hverju eru þeir ekki nefndir til sögunnar?
Hann þakkar fyrst og fremst forsetanum fyrir að hafa bjargað þjóðinni og svo segir hann að Sjálfstæðisflokkurinn hafi stjórnað Icesavedeild Landsbankans!
Játningar Guðmundar Andra gefa merkileg innsýn í sálarlíf hinnar pólitísku yfirstéttar Samfylkingarinnar.
Getur verið að það hafi farið fram hjá Guðmundi Andra að hópur áhugamanna hóf baráttuna gegn Icesave en þeir gengu fram undir samheitinu In Defence-hópurinn? Er ekki ástæða til að þeir njóti þess, sem þeim ber?
Getur verið að það hafi farið fram hjá Guðmundi Andra að Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins hefur frá upphafi verið fremstur í flokki þeirra, sem barizt hafa gegn tilraunum ríkisstjórnarinnar til þess að leggja Icesave-byrðarnar á þjóðina?
Getur verið að það hafi farið fram hjá Guðmundi Andra að forystumenn og talsmenn Sjálfstæðisflokksins fyrr og nú hafa verið í fremstu röð þeirra, sem barizt hafa gegn Icesave?
Hvernig stendur á því, að jafn skynsamur maður og Guðmundur Andri að jafnaði er sýnir sjálfum sér og öðrum ekki þann heiðarleika að koma hreint fram úr því hann á annað borð er svo sakbitinn að hann telur nauðsynlegt að viðurkenna syndir sínar vegna Icesave?
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...