Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Lætur Framsókn freistast?


17. desember 2010 klukkan 09:22

Merki framsóknarflokksins

Ríkisstjórnin er komin út á jarðsprengjubelti. Uppreisn þriggja þingmanna VG gegn afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins, sem þeirra eigin flokksformaður lagði fram á Alþingi er til marks um það. Lilja Mósesdóttir er bersýnilega þeirrar skoðunar, að þetta sé ekki spurning um hvort uppreisnarmennirnir gangi úr þingflokknum heldur hvort valdamennirnir telji sér vært þar.

Hvað gera forystumenn stjórnarflokkanna við þessar aðstæður? Það eru meiri líkur en minni að þeir reyni að freista Framsóknarflokksins, fá hann inn í ríkisstjórnina til þess að tryggja henni öruggan stuðning meirihluta Alþingis.

Hvers vegna gætu Framsóknarmenn látið freistast? Þeir geta sagt sem svo: Við erum búnir að vera í stjórnarandstöðu á annað ár og það hefur ekki skilað okkur neinu. Kannski er betra að vera í ríkisstjórn, hafa stjórn á ákveðnum ráðuneytum og sjá hvort við getum byggt upp fylgi flokksins með því.

Næstu vikur leiða í ljós hvort þetta sjónarmið verður ofan á innan Framsóknarflokksins.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS