Ætli Vinstri grænir geri sér grein fyrir því, að Sóknaráætlun 2020, sem ríkisstjórnin samþykkti formlega fyrir helgi er eftiröpun á sams konar áætlun, sem Evrópusambandsríkin hafa sett sér?! Eða er samþykkt Sóknaráætlunar 2020 eitt af þeim skilyrðum, sem Evrópusambandið hefur sett Íslandi?
Hvernig stendur á því að Sóknaráætlun 2020 hefur ekki verið kynnt hér á Íslandi með eðlilegum hætti? Af hverju er ekki sagt frá því, að þetta er sama prógramm og er á dagskrá ESB-ríkjanna, Evrópa 2020, þar sem sett eru heildarmarkmið fyrir ESB-ríkin og síðan markmið fyrir hvert land fyrir sig?
Af hverju þetta pukur?
Er þetta hin opna og gagnsæja stjórnsýsla, sem núverandi ríkisstjórn hefur boðað?
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér Evrópu 2020 og bera saman við Sóknaráætlun 2020, sem íslenzka ríkisstjórnin hefur samþykkt verða fljótir að finna þetta fyrirbæri á netinu. (www.ec.europa.eu/europe2020).
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...