Mánudagurinn 1. mars 2021

Hvað gerir Þorsteinn Pálsson þá? Situr hann áfram - eða segir hann af sér?


17. janúar 2011 klukkan 08:38

Þorsteinn Pálsson

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins fjallar um stöðu aðlögunarviðræðna Íslands og ESB í grein í Fréttablaðinu sl. laugardag, eins og sagt hefur verið frá í fréttum Evrópuvaktarinnar. En eins og kunnugt er á Þorsteinn Pálsson sæti í íslenzku samninganefndinni.

Í grein sinni segir Þorsteinn:

„Í fyrsta lagi er smám saman verið að taka ákvarðanir í viðræðunum, sem eru skuldbindandi fyrir Ísland með fyrirvara um að á endanum verði samkomulag um alla þætti. Þessar ákvarðanir snerta valdsvið allra ráðherra og eru á ábyrgð hvers og eins.“

Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir, að það er m.a. verið að taka ákvarðanir, sem eru á valdsviði Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og á hans ábyrgð. Væntanlega er ekki hægt að taka slíkar ákvarðanir nema með hans samþykki. Telja verður víst að samþykki hans fáist ekki.

Hvað gerist þá?

Þorsteinn Pálsson segir:

„Veruleikinn er sá, að báðir stjórnarflokkar þurfa að gangast undir sameiginlega ábyrgð á samningaferlinu öllu. Aðrir kostir eru að hætta við eða slíta samstarfinu.“

Hér talar Þorsteinn Pálsson mjög skýrt.

Þá er spurningin þessi: fáist samþykki Jóns Bjarnasonar ekki við því, sem að honum snýr en ríkisstjórnin heldur eftir sem áður áfram viðræðum við Evrópusambandið-hvað gerir Þorsteinn Pálsson þá?

Situr hann áfram í samninganefndinni eftir að hafa lýst stöðu mála með þessum hætti?

Eða segir hann af sér?

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS