Fimmtudagurinn 30. júní 2022

Nýtt afrek Jóhönnu: breiðfylking atvinnurekenda, verkalýðs og bæjar­stjóra


3. febrúar 2011 klukkan 08:59

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er margt til lista lagt. Það verður ekki af henni skafið. Nú er henni að takast að skapa gegn sér breiðfylkingu atvinnurekenda, verkalýðsforingja og 17 bæjarstjóra en allir þessir aðilar krefjast þess, að afstaða ríkisstjórnarinnar til fiskveiðistjórnar liggi fyrir áður en gengið verði til kjarasamninga.

Þessi leikur hófst með því að slík krafa kom frá atvinnurekendum. Henni var svarað af hroka og með hótunum, sem forsætisráðherrann setti fram á flokksstjórnarfundi Samfylkingar sl. laugardag. Og ekki má gleyma hjáróma stuðningi forseta ASÍ við sjónarmið ríkisstjórnarinnar.

Nú er málið allt að snúast í höndum ráðherranna. Í Morgunblaðinu í dag segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju á Akureyri að ríkisstjórnin verði að ákveða þegar í stað hvaða leið hún ætli að fara varðandi fiskveiðistjórnun. Og 17 bæjarstjórar birta þar grein um málið.

Hvernig hefur ríkisstjórninni tekizt að skapa þessa samstöðu gegn sér?

Svarið við því er einfalt.

Hin upphaflega krafa SA er sanngjörn og eðlileg.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS