Það er skiljanlegt að Sjálfstæðismönnum blöskri framganga sumra ráðherra Vinstri grænna í því að koma í veg fyrir eðlilega atvinnuþróun í landinu. Hitt er umhugsunarefni fyrir þá sömu, hvort skynsamlegt sé frá pólitísku hagsmunasjónarmiði Sjálfstæðisflokksins að útiloka fyrirfram samstarf í ríkisstjórn við VG.
Hvað þýðir slík afstaða? Hún þýðir að þar með ræður Samfylkingin því hvenær Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og hvenær ekki. Þá er Samfylkingin komin í þá stöðu, sem Framsóknarflokkurinn var einu sinni í að geta ráðið því, hvort hún vinnur til vinstri eða hægri. Er það eftirsóknarverð pólitísk staða fyrir Sjálfstæðisflokkinn?
Auðvitað er ekki hægt að útiloka að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur fái sameiginlegan meirihluta á þingi í næstu kosningum. En þá er á það að líta að til þess þarf Sjálfstæðisflokkurinn að endurheimta sitt fyrra fylgi í ríkum mæli og Framsóknarflokkurinn líka.
Það þarf vel að ganga í kosningum fyrir þá tvo flokka til þess að slíkt gangi upp.
Þess vegna er hyggilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að útiloka enga samstarfskosti fyrirfram.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...