Þriðjudagurinn 19. janúar 2021

Nýr áróðurspunktur aðildarsinna í ESB-umræðunum


12. febrúar 2011 klukkan 22:33

Í pottinum taka menn eftir því að samhljómur er milli Stefáns Hauks Jóhannessonar, formanns viðræðunefndar Íslands við ESB, og Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, þegar þeir kynna nýjasta áróðurspunktinn í hinni upplýstu umræðu um ESB. Hann er sá að af 22 ríkjum sem sótt hafa um aðild að ESB hafi þjóðin í aðeins einu þeirra sagt nei við aðild.

Timo Summa

Nei-landið er Noregur. Sendiherrarnir láta þess ógetið að Grænlendingar sögðu sig úr ESB árið 1985. Í alhæfingu sinni í þágu aðildar minnast þeir ekki heldur á það að hagsmunir Íslendinga eiga miklu meira skylt við hagsmuni Norðmanna og Grænlendinga en þjóða í fyrrverandi kommúnistaríkjum. Þótt Jóhanna og Steingrímur J. geri allt sem í þeirra valdi stendur til að setja ok sósíalisma á íslensku þjóðina hefur þeim ekki enn tekist að ná sama markmiði og kommúnistastjórnum tókst í austurhluta Evrópu á sínum tíma.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS