Ungur 36 ára gamall borgarstjóri Florence á Ítalíu, Matteo Renzi, hefur vakið athygli þar í landi að sögn The Observer, með bók, sem nefnist Fuori! - Burt! Renzi heldur því fram í bókinni að Ítalir eigi að senda heila kynslóð stjórnmálamanna með Berlusconi í fararbroddi á eftirlaun og skipta um áhöfn í brú ítölsku þjóðarskútunnar.
Um fátt er nú meira rætt manna á meðal hér á Íslandi en vanmátt stjórnmálamanna, í ríkisstjórn og á Alþingi, í borgarstjórn Reykjavíkur og öðrum sveitarstjórnum til þess að takast á við þann vanda, sem að Íslendingum steðjar. Óánægja fólks birtist í stöðugum mótmælum, hvort sem um er að ræða vegna niðurskurðar á framlögum til skólamála almennt eða tónlistarkennslu sérstaklega eða vegna ítrekaðra samþykkta Alþingis á lögum um Icesave.
Það er margt ótrúlega líkt með stjórnmálum á Íslandi og Ítalíu, þótt Berlusconi njóti að vísu sérstöðu!
Það er kannski kominn tími til að skipta alveg um áhöfn í brú íslenzku þjóðarskútunnar?
Senda þau öll BURT!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...