Fimmtudagurinn 28. janúar 2021

ESB okrar á Írum


2. mars 2011 klukkan 15:50

Það er ekki nóg fyrir Evrópusambandið að koma Írum til hjálpar heldur ætla þeir að græða á hjálpinni. Samkvæmt upplýsingum, sem fram hafa komið í tveimur dagblöðum í morgun, The Daily Telegraph í London og The New York Times er fjármögnunarkostnaður Evrópusambandsins á lánum þess til Íra 2,6% en vextirnir, sem Írar borga eru 5,9%.

Þetta virðast vera mjög hagkvæm viðskipti fyrir Evrópusambandsríkin, sem að þessum aðgerðum standa og kannski skiljanlegt að Írar vilji ná samningum um lægri vexti.

Einhvern tíma hefði verið talað um okurvexti í þessu sambandi.

Og svo notar íslenzka samninganefndin okurvexti ESB gagnvart Írum til þess að sannfæra almúgann á Íslandi um að hann eigi að borga það af Icesave, sem þrotabú Landsbankans getur ekki borgað!

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS