Laugardagurinn 16. janúar 2021

Hver er munurinn á Enda Kenny og Jóhönnu Sigurðardóttur?


17. mars 2011 klukkan 09:33

Jóhanna Sigurðardóttir

Það er athyglisvert að fylgjast með því hvernig Enda Kenny, hinn nýi forsætisráðherra Írlands bregst við, þegar aðildarríki ESB með Þjóðverja og Frakka í fararbroddi beita þjóð hans refsivöxtum til þess að knýja fram lækkun skatta á fyrirtæki á Írlandi. Í stað þess að gefast upp og hefjast handa við að útskýra fyrir írsku þjóðinni að hún eigi ekki annarra kosta völ en kyngja því, sem að henni snýr er ljóst að Kenny er að afla Írum bandamanna í þessum átökum.

Enda Kenny

Írski forsætisráðherrann er nú í Washington til þess að eiga fund með Obama. Hvers vegna? Vegna þess, að írskir innflytjendur hafa lengi verið meðal mestu áhrifamanna í demókrataflokknum sérstaklega á austurströnd Bandaríkjanna og þeir kunna því illa að Írar verði enn einu sinni kúgaðir af stórþjóðunum í Evrópu.

Bandaríkjamenn hafa margar leiðir til þess að koma Írum til aðstoðar í þessum átökum, þótt þær sjáist ekki allar á yfirborðinu.

Til þessa dags hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ekkert gert til þess að afla Íslendingum bandamanna í átökunum við Breta og Hollendinga. Írar eru ekki eina þjóðin í Evrópu, sem Bretar hafa reynt að kúga. Eini munurinn á Írlandi og Íslandi er sú, að tilraunin til að kúga Íra fór aðallega fram á 19. öldinni en teygði sig að vísu fram á síðustu öld en kúgunartilraunir Breta gagnvart okkur fóru ekki sízt fram á seinni helmingi 20. aldarinnar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS