Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra:
„Það hefur verið offramboð af neikvæðni í íslenzku samfélagi. Okkur hefur gengið vel í rekstri efnahagsáætlunar AGS og erum að sýna mun betri árangur í efnahagsmálum en mörg Evrópuríki.“
Þetta eru ánægjuleg tíðindi.
Eftir stendur þessi spurning:
Hvernig stendur á því, að Árni Páll talaði ekki svona fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave?
Hverjir héldu því fram, að hér mundi allt fara til fjandans, ef þjóðin felldi Icesave III?
Það væri ánægjulegt upp á söguna að gera ef Árni Páll gæfi skynsamlegar skýringar á mismunandi mati ráðamanna á stöðu þjóðarbúsins fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Ef skýringin er sú, að horfur í þjóðarbúskapnum hafa batnað svo mjög vegna þess, að þjóðin hafnaði því að taka á sig skuldir, sem henni komu ekki við verður þessi nýi tónn hins vegar skilajnlegur!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...