Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

„His Masters Voice“ á ferð í Reykjanesbæ


24. apríl 2011 klukkan 20:19

Ósköp var ömurlegt að hlusta á Friðjón Einarsson, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanessbæjar koma fram í fréttum RÚV-sjónvarps í gærkvöldi, sunnudagskvöld og verja aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum á Suðurnesjum.

Á sama tíma og atvinnuleysi á Suðurnesjum er að nálgast 15%, sem er óheyrilegt með öllum þeim afleiðingum, sem slíkt hefur fyrir fólk, kemur kjörinn fulltrúi íbúanna í Reykjanesbæ fram, sem eins konar „His Masters Voice“ og segir að ríkisstjórnin geti ekkert gert!

Hvað var hún þá að skipta sér af málefnum Suðurnesja og byggja upp væntingar með því að halda sérstakan ríkisstjórnarfund þar og lofa öllu fögru?

Ekki batnaði það, þegar „His Masters Voice“, tók sérstakt hliðarspor til þess að ráðast á samstarfsmann Samfylkingarinnar í ríkisstjórn, Ögmund Jónasson, og kenna honum um það, sem miður færi vegna málefna Landhelgisgæzlunnar. Það er gagnlegt fyrir Ögmund að vita hvað að honum snýr frá samstarfsflokknum.

Friðjón Einarsson virðist ekki átta sig á því, að hann var kosinn í bæjarstjórn af fólkinu í Reykjanesbæ en ekki af forystu Samfylkingarinnar. Hann ber ábyrgð gagnvart því fólki en ekki Jóhönnu Sigurðardóttur.

Íbúar Reykjanesbæjar munu áreiðanlega ekki gleyma þessu framtaki bæjarfulltrúans, þegar kemur að næstu kosningum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS