Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Ragnar Arnalds:Hálfvelgja VG í ESB-málum verður flokknum dýrkeypt


16. júní 2011 klukkan 08:10

Það eru fleiri en þeir, sem skrifa Evrópuvaktina, sem telja, að Vinstri grænir séu komnir í mikla pólitíska erfiðleika vegna afstöðu þeirra til aðildarumsóknar Íslands að ESB. Einn af þeim er Ragnar Arnalds, félagi í Vinstri hreyfingunni –grænt framboð, fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins og fyrrverandi þingmaður og ráðherra þess flokks. Í grein á Vinstrivaktinni segir Ragnar:

„Hætt er við að margir fyrrum kjósendur VG sem andvígir eru aðild treysti ekki flokknum þegar næst verður kosið vegna þess að flokkurinn greiddi götu aðildarumsóknar að ESB. Á hinn bóginn munu þeir sem mikinn áhuga hafa á ESB-aðild styðja Samfylkinguna þar sem stefna VG er að Ísland standi utan við ESB. Fylgið mun því tálgast jafnt og þétt af VG frá báðum hliðum meðan afstaða flokksins í þessu máli er jafn hálfvolg og tvíbent og raun ber vitni.

Æ færri trúa því í alvöru að það þurfi að taka mörg ár „að kíkja í pakkann“ og „sjá hvað í boði er“ eins og afstaða VG var réttlætt með fyrir bráðum tveimur árum. Nú þegar hefur VG orðið fyrir þungum búsifjum út af þessu máli, sbr. nýlegar úrsagnir, og flest bendir til þess að hálfvelgja flokksins í þessu stærsta og örlagaríkasta máli þjóðarinnar eigi eftir að verða flokknum afar dýrkeypt á komandi árum nema forystulið hans taki á sig rögg og segi sig með skýrum hætti frá þessu feigðarflani Samfylkingarinnar í náðarfaðm ESB.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS