Það er skiljanlegt að mál stöðvist þegar stjórnarflokkarnir tveir geta ekki komið sér saman eins og raunin er varðandi orkufrekan iðnað. Það er auðvitað ljóst að sú stöðnun, sem ríkt hefur á því sviði frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum er bein afleiðing af aðgerðum og aðgerðaleysi ríkisstjórnar, sem í grundvallaratriðum er ósammála um hvert skuli stefna.
Það er ekki einleikið að ekkert skuli gerast, hvorki í Helguvík né á Bakka.
En jafnframt er mjög erfitt að skilja hvers vegna ríkisstjórnin getur heldur ekki komið áfram málum, sem hún er sammála um.
Það er enginn ágreiningur innan ríkisstjórnar og á milli stjórnarflokkana um kvótamálið. En samt er það í uppnámi!
Af hverju? Vegna þess, að það er alveg augljóst af áliti svonefndrar sérfræðinganefndar um kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar að þau eru svo illa undirbúin að jafnvel Ólína Þorvarðardóttir gerir sér grein fyrir, að lengra verður ekki haldið að óbreyttu.
Hvað á að gera við ríkisstjórn, sem getur ekki einu sinni komið fram þeim málum, sem hún er sammála um?!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...