Af hverju ætli Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hafi efnt til fundar með aðilum vinnumarkaðar í gær? Hann virðist ekki hafa haft neitt nýtt að segja. Engar nýjar tillögur eða hugmyndir um hvernig ríkisstjórnin gæti staðið við fyrirheit sín gagnvart aðilum vinnumarkaðar. Einn fundarmanna, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins lýsir fundinum með þessum orðum í Morgunblaðinu í dag:
„Fundurinn var jafn nálægt því og komizt verður að snúast um ekki neitt.“
!!!
Úr því að fundurinn snerist um ekki neitt er aðeins ein skýringin á því, að hann var haldinn. Ögmundur Jónasson hefur séð ástæðu til að undirstrika algert úrræðaleysi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar við að finna lausn á vandanum vegna nýgerðra kjarasamninga.
Þess vegna efndi hann til fundarins.
Hinar „malandi stéttir“ stjórna Íslandi um þessar mundir. Ríkisstjórn þeirra hefur brotnað saman.
Virði hennar fyrir samfélagið er ekki einu sinni hrakvirði.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...